Aðgengi eldri kortagagna á tímum sameiningar stofnana (138)
Landfræðileg upplýsingaverkefni hafa skilað miklu til samfélagsins í gegnum tíðina. Þetta mikilvæga fagsvið höfum við gjarnan séð fjallað um opinberlega hér á landi í tengslum við kortagerð, loftmyndir, gervitunglagögn og landmælingar, en jafnframt í birtingu ýmissa landfræðilegra gagna í kortasjám og sérhæfðum landfræðilegum vefsíðum á netinu. Í bakgrunni þessarar starfsemi liggur gríðarleg gagnasöfnun af ýmsum toga, kortagögn sem aflað hefur verið á vegum opinberra stofnana, sveitarfélaga og fyrirtækja á markaði áratugum saman. Í þeim liggur ómetanleg saga og þar eru fólgnir möguleikarnir á að skoða breytingar á yfirborði landsins í gegnum tíðina. Þessi málaflokkur og tengd verkefni eru talin hafa kostað samfélagið milljarða á löngum tíma og verulegur hluti þess hefur verið greiddur af opinberu skattfé. Það er því mikilvægt að notendur, hvort sem þeir eru sérfræðingar eða úr hópi almennings, hafi sem best aðgengi á netinu að þessum nauðsynlegu heimildum. Lesa meira…
