All posts by: Garðar Garðarsson

Vefsjá fyrir Atlaskort

Landmælingar Íslands hafa í samstarfi við Samsýn sett upp nýja vefsjá fyrir Atlaskort og birtist hún á forsíðu vefs stofnunarinnar.  Atlaskortin eru 87 talsins og voru þau upphaflega gerð af dönskum landmælingamönnum á fyrstu fjórum áratugum 20. aldar. Þau eru af mörgum talin meðal fallegustu korta af Íslandi. Kortin eru í mælikvarða 1:100 000, með 20 metra hæðarlínubili og sýna helstu atriði á yfirborði landsins, svo sem vegi, slóða og stíga ásamt fjölda örnefna. Gerð kortanna var mikið þrekvirki á sínum tíma og eru þau mikilvægur hluti af sögulegum menningararfi þjóðarinnar.  Í vefsjánni birtast kortin samsett sem ein heild, en þannig komu þau fyrst fyrir sjónir almennings á svonefndum Atlaskortadiski fyrir nokkrum árum. Atlaskortin voru síðast uppfærð árið 1989. Vefsjáin býður möguleika á að leita eftir örnefnum, en jafnframt er hægt að slá inn heimilisföng og fá fram staðsetningu á korti þó Atlaskortin hafi ekki þá nákvæmni til að bera sem þarf til að sýna staðsetningu einstakra heimilisfanga. Hægt er að skoða kortin allt niður í mælikvarða 1:38 500, eins og fram kemur á vefsíðu LMÍ. 

Nýtt sjókort af Austfjörðum

Nýtt sjókort í mælikvarða 1:100 000 af Austfjörðum, Glettinganes – Hlaða,  er komið út hjá Sjómælingum Íslands. Kortið, sem er nr. 73, nær frá Glettinganesi, sunnan Borgarfjarðar eystri að Hlöðu í Breiðdalsvík. Kortið leysir af hólmi eldra kort með sama nafni og númeri, en gamla kortið var gefið út af „det kongelige Søkort-Arkiv“ í Kaupmannahöfn í október 1944. Dýptarmælingarnar sem sú útgáfa kortsins byggir að stærstum hluta á voru gerðar árið 1898, eða fyrir 109 árum.

Útkoma hins nýja sjókorts er mikilsverður viðburður bæði fyrir sjómælingasvið Landhelgisgæslunnar og ekki síður sjófarendur við Ísland sem fá nú í hendur kort sem byggir á nýjustu upplýsingum um svæðið. Nýja kortið byggir á dýptarmælingum sem gerðar voru á mælingabátnum Baldri á árunum 2003 og 2004. Mælingar nærri landi og inni á fjörðum voru gerðar með fjölgeisladýptarmæli, en önnur svæði voru mæld með venjulegum bergmálsdýptarmæli.

Vandaður myndaatlas með gervitunglagögnum

Máli og menning hefur gefið út nýjan atlas með gervitunglamyndum “Jörðin í öllu sínu veldi”, eftir Douglas Palmer í þýðingu Arnar Sigurðssonar.

Í kynningartexta um verkið segir á vef fyrirtækisins:
“Jörðin í öllu sínu veldi birtir okkur glæsilegustu myndir sem nokkru sinni hafa verið teknar af hnettinum okkar, plánetunni Jörð. Gervitunglamyndir frá bandarísku geimferðastofnunni NASA hafa verið unnar með fullkomnustu tækni og útkoman er myndaatlas sem sýnir allt yfirborð jarðarinnar, verk sem hiklaust mætti kalla heimsatlas 21. aldarinnar. Hér getum við fylgst með Amazonfljótinu streyma frá upptökum sínum í Andesfjöllum til sjávar í Atlantshafi, skoðað óteljandi sandöldur Sahara-eyðimerkurinnar eða fellingafjöllin miklu sem urðu til við árekstra flekanna sem mynda jarðskorpuna. Við getum séð hvernig árstíðirnar og veðrið breyta ásýnd jarðarinnar, þegar snjórinn fellur á norðurhvelið og bráðnar á suðurhvelinu og víðátturnar blómstra og skrælna í takt við regnið. Hér er stórbrotin og sláandi fegurð jarðarinnar í brennidepli, fjöllin og eyðimerkurnar, vötnin og höfin, og það umhverfi sem mótað hefur tilvist og sögu mannsins frá upphafi vega. Hér fáum við að sjá, frá nýju og heillandi sjónarhorni, heimkynni okkar í öllu sínu veldi – þennan dýra fjársjóð sem við eigum öll saman.

Douglas Palmer er vísindamaður og fyrirlesari við Háskóla símenntunar í Cambridge. Hann er höfundur fjölda bóka um jörðina og dýralíf hennar, m.a. um risaeðlur, steingervinga og þróun mannsins.”
Jörðin í öllu sínu veldi er 224 bls. í stóru broti og kemur í vandaðri öskju.

Vefsjár fyrir Árborg og Hveragerði

Tvær nýjar vefsjár hafa verið tengdar inn á landakort.is, en þær sýna landfræðileg gögn af Árborg og Hveragerði. Vefsjárnar eru unnar í landupplýsingakerfi er nefnist Granni, en það er rekið er af Verkfræðistofu Suðurlands á Selfossi. Granni er tvennskonar. Annarsvegar er hann alhliða landupplýsingakerfi sem öll sveitarfélög í Árnessýslu nota, en sá hluti Granna er lokaður almennum notendum. Hins vegar er hann opinn vefur fyrir almenning. Árborg og Hveragerði eru einu sveitarfélögin sem hafa sett upp opna vefsjá fyrir almenning með takmörkuðum upplýsingum. Það eru um tvö ár síðan vefsjárnar fóru fyrst á vefinn. Opnu vefsjárnar bjóða upp á fasteignaupplýsingar, teikningar og að birta aðalskipulag. Öll vinnsla kortagagna fer fram í hugbúnaði frá Autodesk en Granni notar í kortahluta Autodesk MapGuide.

Kortaskjár IS 50V – Ný vefsjá LMÍ

Landmælingar Íslands hafa birt á vefsíðu sinni nýja vefsjá – Kortaskjá IS 50V. Í vefsjánni eru gögn sem eru að mestu byggð á hinum stafræna kortagrunni Landmælinga Íslands IS 50V. Upplýsingarnar eru sóttar jafnóðum í gagnagrunn og er hægt er að leita eftir örnefnum og heimilisföngum á einfaldan hátt.  Þegar þysjað er inn í kortið birtast hin ýmsu lög grunnsins smám saman. Ekki er hægt að þysja lengra inn en sem nemur mælikvarða 1:10 000. Hægt er að fá fram nánari skýringar vegna notkunar með því að smella á skýringahnapp. Vefsjáin er unnin í samstarfi við fyrirtækið Samsýn.

Ný útgáfa Íslandskorta fyrir Garmin GPS tæki

Fyrirtækið R. Sigmundsson hefur sett á markað nýja uppfærslu á Íslandskorti fyrir Garmin GPS tæki, útgáfu 3,5. Um er að ræða leiðsöguhæf vegakort fyrir allt landið ásamt götukorti af bæjarfélögum, 40.000 örnefnum, yfir 4.000 áhugaverðum stöðum og hæðarlínum með 20 metra bili. Kortin eru ætluð til notkunar í Garmin GPS, PC heimilistölvum eða Windows Mobile handtölvum. Í nýju útgáfunni eru ýmsar viðbætur, lagfæringar og breytingar. Þar má nefna: einfaldari innslátt á heimilisfangi, fleiri og greinilegri slóða og leiðrétta staðsetningu ýmissa sveitabæja og örnefna. Þá hafa upplýsingar um vatnafar verið stórbættar, ný uppistöðulón hafa verið sett inn og viðbætur gerðar á vega- og gatnakerfi svo eitthvað sé nefnt. Kortagögnin er unnin af fyrirtækjunum Samsýn og Hnit hf.

Sveitarfélög á Íslandi – Nýr kortaskjár LMÍ

Landmælingar Íslands hafa sett upp á forsíðu vefs stofnunarinnar, nýjan kortaskjá fyrir upplýsingar um sveitarfélög á Íslandi. Á kortaskjánum er hægt að fá upplýsingar um nöfn sveitarfélaga, íbúafjölda, stærð í ferkílómetrum og fjölda íbúa á ferkílómetra.  Landfræðilegar upplýsingar koma úr IS 500V grunni LMÍ, en upplýsingar um fjölda íbúa eru fengnar frá Hagstofu Íslands og miðast við 31. desember 2006.  Hugbúnaðurinn sem notaður er kemur frá Samsýn ehf. og ESRI.   Sveitarfélög á Íslandi

Lönd heimsins – Vefur Námsgagnastofnunar

Markmiðið með þessum nýja vef Námsgagnastofnunar er að veita vitneskju um veröldina sem við lifum í.  Á vefnum er gagnagrunnur sem hefur að geyma upplýsingar um marga ólíka þætti sem tengjast málefnum landa heimsins. Út frá stafrófsröðuðum lista og listum yfir lönd eftir heimsálfum má m.a. finna upplýsingar um landið, sögu þess, þjóðina sem þar býr, íbúafjölda, stjórnarfar, efnahag, náttúruauðlindir, hita og úrkomu. Þá má t.d. sjá fána landsins, spila þjóðsöng og skoða yfirlitskort. Lönd heimsins

Ný kortavefsjá fyrir íslenska skóla

Námsgagnastofnun hefur í samstarfi við fyrirtækið Gagarín og Landmælingar Íslands opnað nýja kortavefsjá með upplýsingum um ýmsa þekkta staði á Íslandi, þ.e. ár, eyjar, fjöll, fossa, jökla, stöðuvötn, þéttbýli og þjóðgarða. Mynd frá Mats Wibe Lund birtist ásamt texta um valda staði þegar smellt er á nafn staðar á korti. Hægt er að færa sig til eftir kortinu og draga landshluta nær (þysja inn) og skoða þá aðeins lítinn hluta kortsins. Í nokkrum tilfellum er vísun í nánari upplýsingar um staði á annarri vefslóð. Kortavefsjá af Íslandi.

Útgáfa nýrra korta og opnun vefsíðu Ferðakorta

Á nýrri vefsíðu Ferðakorta má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins og helstu kortaflokka sem það hefur til sölu, en Iðnmennt ses. eigandi Ferðakorta keypti sem kunnugt er útgáfugrunna og kortalager Landmælinga Íslands fyrr á þessu ári.

Komin er á markað ný prentun af nokkrum vinsælustu kortunum sem áður komu út hjá LMÍ, en þau eru með nýjum kápum og nú seld í plastvösum. Um er að ræða öll þrjú ferðakortin í mælikvarða 1:250 000 sem saman þekja allt landið með mikilli skörun milli kortblaða og hið vinsæla heildarkort af Íslandi, Ferðakort 1:500 000, sem kemur nú í nýrri prentun. Sama er að segja um sérkort Þórsmörk-Landmannalaugar og útivistarkort af Suðvesturlandi. Þá er einnig komin ný prentun af Vegaatlas í mælikvarða 1:200 000, sem er handhæg gormabók í bílinn. Kortin fást á sölustöðum korta um allt land, en sérverslun með kort Ferðakorta er í Iðnú bókabúð, Brautarholti 8, Reykjavík

  • Velkomin á landakort.is

    Landakort.is er vefgátt fyrir landfræðilegar upplýsingar á Íslandi. Lesa meira...