Fjórðungskort Máls og menningar í nýrri útgáfu
Mál og menning hefur gefið út fjögur ný fjórðungskort af Íslandi í mælikvarða 1:300 000. Kortin ná yfir Suðvesturland, Norðvesturland, Norðausturland og Suðausturland. Við endurgerð kortanna hefur sérstök áhersla verið lögð á nýtt og vandað hæðarlíkan af landinu í náttúrulegum litum þar sem sérstök áhersla er lögð á gróðurlendur landsins og myndræna skyggingu hálendisins. Fjölmörg […]
Veldu þinn stað – Nýr vefur hjá Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar hefur opnað nýjan vef sem ber nafnið Veldu þinn stað og er markmiðið með honum að borgarbúar geti skoðað á Netinu ný íbúðasvæði og lóðir sem verða til úthlutunar á næstunni. Með vefnum verða uppbyggingar- og úthlutunaráform borgarinnar öllum aðgengileg. Upplýsingakort sýnir uppbyggingarsvæðin í borginni, hvar þau eru og hvenær úthlutun […]
Gagarín setur upp nýja kortaþjónustu fyrir Já.is
Á vefsíðu símaskrárinnar Já.is er komin upp ný gagnvirk kortaþjónusta, sem býður uppá fjölbreytta korttengda leitarmöguleika þegar finna þarf heimilisföng og símanúmer aðila á ýmsum sviðum í samfélaginu. Vefsjáin er unnin af fyrirtækinu Gagarín og byggir meðal annars á gögnum frá Landupplýsingakerfi Reykjavíkur (LUKR), Landmælingum Íslands og heimilisfangaskrá Hnits hf.
Nýtt sjókort af Reyðarfirði komið út
Sjómælingar Íslands gáfu nýlega út nýtt sjókort af Reyðarfirði. Kortið er nr. 716 og inni á því er hin nýja höfn Fjarðaráls við Mjóeyri. Kort þetta kemur í stað eldra korts af innsta hluta Reyðarfjarðar sem var með saman númer og í sama mælikvarða. Kortið er í fullri sjókortastærð (72×102 cm), mælikvarðinn 1:10 000, viðmiðun […]
Map24 – Ný vefþjónusta frá Loftmyndum ehf.
Fyrirtækið Loftmyndir ehf. hefur í á annan áratug haft það að markmiði að kortleggja allt Ísland með mikilli nákvæmni. Fyrirtækið hefur staðið fyrir viðamikilli og skipulegri loftmyndatöku af landinu þar sem teknar hafa verið á þriðja tug þúsunda loftmynda. Með markvissri vinnu er nú til orðinn nákvæmur kortagrunnur af Íslandi sem unninn er og viðhaldið […]
Fjölmörg sveitarfélög nýta sér Infrapath frá Snertli
Snertill hefur undanfarin misseri boðið uppá ýmsar spennandi lausnir með Infrapath landupplýsingakerfinu fyrir sveitarfélög. Korta- og þjónustukerfi Infrapath veitir íbúum þær upplýsingar úr korta- og gagnagrunni sveitarfélagsins, sem leyfilegt er að veita og birta á veraldarvefnum. Á vefsíðu Snertils, undir flipanum Infrapath landupplýsingar, er nú beinn aðgangur að slíkum upplýsingum 12 sveitarfélaga. Þau eru: Akureyri, […]
Iðnmennt kaupir útgáfugrunna LMÍ
Fyrirtækið Iðnmennt ses, sem meðal annars rekur bókaútgáfu undir merkjum IÐNÚ, hefur keypt útgáfugrunna sem notaðir hafa verið við útgáfu helstu ferðakorta frá Landmælingum Íslands. Grunnarnir voru boðnir út og var Iðnmennt með hæsta tilboðið. Um er að ræða Vegaatlas 1:200 000, Ferðakort 1:250 000, Ferðakort 1:500 000, Ferðakortabók 1:500 000 og Ferðakort 1:750 000. Iðnmennt […]
Ný kortabók handa grunnskólum
Út er komin hjá Námsgagnastofnun aukin og endurskoðuð útgáfa af Kortabók handa grunnskólum. Bókin er átta síðum stærri en fyrri útgáfa. Bætt hefur verið við opnukorti af Íslandi fremst í bókinni og kort yfir landshlutana eru ítarlegri og auðveldari aflestrar en áður. Nokkrum þemakortum hefur verið bætt við alþjóðlega hlutann, m.a. um sólkerfið. Þá eru […]
Kortabók Íslands – Ný útgáfa frá MM
Komin er út ný útgáfa Kortabókar Íslands hjá Máli og menningu. Bókin inniheldur ný kort í mælikvarða 1:300 000, með útliti Íslandsatlass Eddu, sem kom út á síðasta ári. Svipbrigði landsins eru sýnd á 60 kortum sem unnin eru með stafrænni kortatækni og sýna landið allt, frá hæstu tindum til ystu annesja og eyja. Kortabókin […]
Á vegi – Vefsjá um löglegt vegakerfi
Opnaður hefur verið nýr vefur, Á vegi, sem stuðla á að því að vegfarendur haldi sig á þeim vegum sem ætlaðir eru almenningi. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra opnaði vefinn en verkefnið er í umsjá umhverfisráðuneytisins. Landmælingar Íslands hafa lagt til kort, vegnúmeraleit og örnefnaleit til verksins, en auk þeirra kemur Umhverfisstofnun að verkefninu.