Vandaður myndaatlas með gervitunglagögnum
Máli og menning hefur gefið út nýjan atlas með gervitunglamyndum “Jörðin í öllu sínu veldi”, eftir Douglas Palmer í þýðingu Arnar Sigurðssonar. Í kynningartexta um verkið segir á vef fyrirtækisins: “Jörðin í öllu sínu veldi birtir okkur glæsilegustu myndir sem nokkru sinni hafa verið teknar af hnettinum okkar, plánetunni Jörð. Gervitunglamyndir frá bandarísku geimferðastofnunni NASA […]
Vefsjár fyrir Árborg og Hveragerði
Tvær nýjar vefsjár hafa verið tengdar inn á landakort.is, en þær sýna landfræðileg gögn af Árborg og Hveragerði. Vefsjárnar eru unnar í landupplýsingakerfi er nefnist Granni, en það er rekið er af Verkfræðistofu Suðurlands á Selfossi. Granni er tvennskonar. Annarsvegar er hann alhliða landupplýsingakerfi sem öll sveitarfélög í Árnessýslu nota, en sá hluti Granna er […]
Kortaskjár IS 50V – Ný vefsjá LMÍ
Landmælingar Íslands hafa birt á vefsíðu sinni nýja vefsjá – Kortaskjá IS 50V. Í vefsjánni eru gögn sem eru að mestu byggð á hinum stafræna kortagrunni Landmælinga Íslands IS 50V. Upplýsingarnar eru sóttar jafnóðum í gagnagrunn og er hægt er að leita eftir örnefnum og heimilisföngum á einfaldan hátt. Þegar þysjað er inn í kortið […]
Ný útgáfa Íslandskorta fyrir Garmin GPS tæki
Fyrirtækið R. Sigmundsson hefur sett á markað nýja uppfærslu á Íslandskorti fyrir Garmin GPS tæki, útgáfu 3,5. Um er að ræða leiðsöguhæf vegakort fyrir allt landið ásamt götukorti af bæjarfélögum, 40.000 örnefnum, yfir 4.000 áhugaverðum stöðum og hæðarlínum með 20 metra bili. Kortin eru ætluð til notkunar í Garmin GPS, PC heimilistölvum eða Windows Mobile […]
Sveitarfélög á Íslandi – Nýr kortaskjár LMÍ
Landmælingar Íslands hafa sett upp á forsíðu vefs stofnunarinnar, nýjan kortaskjá fyrir upplýsingar um sveitarfélög á Íslandi. Á kortaskjánum er hægt að fá upplýsingar um nöfn sveitarfélaga, íbúafjölda, stærð í ferkílómetrum og fjölda íbúa á ferkílómetra. Landfræðilegar upplýsingar koma úr IS 500V grunni LMÍ, en upplýsingar um fjölda íbúa eru fengnar frá Hagstofu Íslands og […]
Lönd heimsins – Vefur Námsgagnastofnunar
Markmiðið með þessum nýja vef Námsgagnastofnunar er að veita vitneskju um veröldina sem við lifum í. Á vefnum er gagnagrunnur sem hefur að geyma upplýsingar um marga ólíka þætti sem tengjast málefnum landa heimsins. Út frá stafrófsröðuðum lista og listum yfir lönd eftir heimsálfum má m.a. finna upplýsingar um landið, sögu þess, þjóðina sem þar […]
Ný kortavefsjá fyrir íslenska skóla
Námsgagnastofnun hefur í samstarfi við fyrirtækið Gagarín og Landmælingar Íslands opnað nýja kortavefsjá með upplýsingum um ýmsa þekkta staði á Íslandi, þ.e. ár, eyjar, fjöll, fossa, jökla, stöðuvötn, þéttbýli og þjóðgarða. Mynd frá Mats Wibe Lund birtist ásamt texta um valda staði þegar smellt er á nafn staðar á korti. Hægt er að færa sig til […]
Útgáfa nýrra korta og opnun vefsíðu Ferðakorta
Á nýrri vefsíðu Ferðakorta má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins og helstu kortaflokka sem það hefur til sölu, en Iðnmennt ses. eigandi Ferðakorta keypti sem kunnugt er útgáfugrunna og kortalager Landmælinga Íslands fyrr á þessu ári. Komin er á markað ný prentun af nokkrum vinsælustu kortunum sem áður komu út hjá LMÍ, en […]
Fjórðungskort Máls og menningar í nýrri útgáfu
Mál og menning hefur gefið út fjögur ný fjórðungskort af Íslandi í mælikvarða 1:300 000. Kortin ná yfir Suðvesturland, Norðvesturland, Norðausturland og Suðausturland. Við endurgerð kortanna hefur sérstök áhersla verið lögð á nýtt og vandað hæðarlíkan af landinu í náttúrulegum litum þar sem sérstök áhersla er lögð á gróðurlendur landsins og myndræna skyggingu hálendisins. Fjölmörg […]
Veldu þinn stað – Nýr vefur hjá Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar hefur opnað nýjan vef sem ber nafnið Veldu þinn stað og er markmiðið með honum að borgarbúar geti skoðað á Netinu ný íbúðasvæði og lóðir sem verða til úthlutunar á næstunni. Með vefnum verða uppbyggingar- og úthlutunaráform borgarinnar öllum aðgengileg. Upplýsingakort sýnir uppbyggingarsvæðin í borginni, hvar þau eru og hvenær úthlutun […]