Fréttir

Gagarín setur upp nýja kortaþjónustu fyrir Já.is

Á vefsíðu símaskrárinnar Já.is er komin upp ný gagnvirk kortaþjónusta, sem býður uppá fjölbreytta korttengda leitarmöguleika  þegar finna þarf heimilisföng og símanúmer aðila á ýmsum sviðum í samfélaginu. Vefsjáin er unnin af fyrirtækinu Gagarín og byggir meðal annars á gögnum frá Landupplýsingakerfi Reykjavíkur (LUKR), Landmælingum Íslands og heimilisfangaskrá Hnits hf. Lesa meira…

Nýtt sjókort af Reyðarfirði komið út

Sjómælingar Íslands gáfu nýlega út nýtt sjókort af Reyðarfirði. Kortið er nr. 716 og inni á því er hin nýja höfn Fjarðaráls við Mjóeyri. Kort þetta kemur í stað eldra korts af innsta hluta Reyðarfjarðar sem var með saman númer og í sama mælikvarða. Kortið er í fullri sjókortastærð (72×102 cm), mælikvarðinn 1:10 000, viðmiðun er WGS-84 og mörk kortsins: 65°00’00″n – 65°03’30″n, 14°02’00″v – 14°14’00″v.
Á sama tíma kom út ný útgáfa af sjókorti nr. 363 sem er af höfnunum í Hafnarfirði og Straumsvík, auk þess sem nýar útgáfur er einnig komnar af kortunum af Akureyri og Norðfirði. Eldri útgáfur af þessum kortum eru þar með fallnar úr gildi. Lesa meira…

Map24 – Ný vefþjónusta frá Loftmyndum ehf.

Fyrirtækið Loftmyndir ehf. hefur í á annan áratug haft það að markmiði að kortleggja allt Ísland með mikilli nákvæmni. Fyrirtækið hefur staðið fyrir viðamikilli og skipulegri loftmyndatöku af landinu þar sem teknar hafa verið á þriðja tug þúsunda loftmynda. Með markvissri vinnu er nú til orðinn nákvæmur kortagrunnur af Íslandi sem unninn er og viðhaldið af starfsmönnum fyrirtækisins.

Map24 er ný vefkortaþjónusta hér á landi. Íslensk gögn úr gagnagrunni Loftmynda eru nú aðgengileg á veraldarvefnum, en þar er t.d. hægt að fletta upp í heimilsfangagrunni fyrirtækisins þar sem skráð er nákvæm staðsetning yfir 99% heimilsfanga á Íslandi.  Þá er á Map24 bæði hægt að fá vegvísun milli staða á Íslandi og í öðrum löndum þar sem finna má nákvæm götukort af öllum helstu viðkomustöðum ferðaglaðra Íslendinga og er þannig einfalt að skipuleggja ferðalög erlendis. Hugbúnaðurinn, sem er frá Mapsolute Gmbh, er þekktur víða um lönd og byggir á langri reynslu. Gögnin eru síðan frá Loftmyndum ehf., Tele Atlas og Navteq. Unnið er að nánari þróun verkefnisins og munu ýmsir kostir verða kynntir á næstunni. Með þessari nýju þjónustu við íslenska kortanotendur og ferðamenn skapast ótal nýir möguleikar sem margir munu fagna.

Fjölmörg sveitarfélög nýta sér Infrapath frá Snertli

Snertill hefur undanfarin misseri boðið uppá ýmsar spennandi lausnir með Infrapath landupplýsingakerfinu fyrir sveitarfélög. Korta- og þjónustukerfi Infrapath veitir íbúum þær upplýsingar úr korta- og gagnagrunni sveitarfélagsins, sem leyfilegt er að veita og birta á veraldarvefnum. Á vefsíðu Snertils, undir flipanum Infrapath landupplýsingar, er nú beinn aðgangur að slíkum upplýsingum 12 sveitarfélaga. Þau eru: Akureyri, Dalvíkurbyggð, Grindavík, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjarðarbær, Húnaþing vestra, Kópavogsbær, Rangárþing ytra, Reykjanesbær, Seltjarnarnes, Skútustaðahreppur og Snæfellsbær. Infrapath og tengd kerfi eru nú í notkun hjá alls 15 sveitarfélögum hér á landi. Vefásýndin er samræmd með ýmsum valmöguleikum, m.a. er hægt að velja þar milli 6 tungumála, en yfirflokkar kerfisins eru: íbúar, fasteignir, teikningar, skipulag, götur, veitur, umsóknir og þjónusta. Vefur Snertils www.snertill.is og vefsíður viðkomandi sveitarfélaga veita beinan aðgang að áðurnefndum upplýsingum, auk þess sem hægt er að komast í upplýsingar hvers sveitarfélags á forsíðu landakort.is í kaflanum „Vefsjár sveitarfélaga“. Lesa meira…

Iðnmennt kaupir útgáfugrunna LMÍ

Fyrirtækið Iðnmennt ses, sem meðal annars rekur bókaútgáfu undir merkjum IÐNÚ, hefur keypt útgáfugrunna sem notaðir hafa verið við útgáfu helstu ferðakorta frá Landmælingum Íslands. Grunnarnir voru boðnir út  og var Iðnmennt með hæsta tilboðið. Um er að ræða Vegaatlas 1:200 000, Ferðakort 1:250 000, Ferðakort 1:500 000, Ferðakortabók 1:500 000 og Ferðakort 1:750 000. Iðnmennt hefur jafnframt keypt eldri kortalager LMÍ. Eins og fram hefur komið tóku ný lög um landmælingar og kortagerð gildi 1. janúar 2007, en þar kemur meðal annars fram að Landmælingar Íslands skuli hætta sölu prentaðra korta. Stofnunin hefur með þessu hætt gerð, útgáfu og sölu ferðakorta sem hefur verið stór hluti starfseminnar um áratuga skeið.

Ný kortabók handa grunnskólum

Út er komin hjá Námsgagnastofnun aukin og endurskoðuð útgáfa af Kortabók handa grunnskólum. Bókin er átta síðum stærri en fyrri útgáfa. Bætt hefur verið við opnukorti af Íslandi fremst í bókinni og kort yfir landshlutana eru ítarlegri og auðveldari aflestrar en áður. Nokkrum þemakortum hefur verið bætt við alþjóðlega hlutann, m.a. um sólkerfið. Þá eru nafnaskrár ítarlegri en í fyrri útgáfum. Bókin er sem fyrr unnin í samstarfi við Liber – útgáfuna í Stokkhólmi en Íslandskort eru að mestu fengin frá Landmælingum Íslands og Jean-Pierre Biard kortagerðarmanni. Á bókarkápu er kort Guðbrands biskups Þorlákssonar sem kom út í hollensku kortasafni árið 1590. Kortið var lengi undirstaða þeirra myndar sem birtist af landinu, skreytt fjölda mynda af ófreskjum og sæskrímslum og er skemmtilegt að bera það saman við nútíma kort og myndir.

Kortabók Íslands – Ný útgáfa frá MM

Komin er út ný útgáfa Kortabókar Íslands hjá Máli og menningu. Bókin inniheldur ný kort í mælikvarða 1:300 000, með útliti Íslandsatlass Eddu, sem kom út á síðasta ári. Svipbrigði landsins eru sýnd á 60 kortum sem unnin eru með stafrænni kortatækni og sýna landið allt, frá hæstu tindum til ystu annesja og eyja. Kortabókin er gormabundin í hentugu handbókarbroti og geymir yfir 9000 örnefni. Auk þess eru í henni fjöldi þéttbýliskorta, ítarlegar nafnaskrár og kort yfir tjaldstæði, sundlaugar, söfn og golfvelli. ISBN: 9979-3-2753-7

Á vegi – Vefsjá um löglegt vegakerfi

Opnaður hefur verið nýr vefur, Á vegi, sem stuðla á að því að vegfarendur haldi sig á þeim vegum sem ætlaðir eru almenningi. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra opnaði vefinn en verkefnið er í umsjá umhverfisráðuneytisins. Landmælingar Íslands hafa lagt til kort, vegnúmeraleit og örnefnaleit til verksins, en auk þeirra kemur Umhverfisstofnun að verkefninu.

Leiðsögutæki í bíla selst vel hjá R. Sigmundsson

R.Sigmundsson hefur verið með til sölu nýtt leiðsögutæki í bíla sem selst hefur vel að undanförnu. Tækið sem er af gerðinni Nüvi 350 og er handhægt leiðsögutæki sem hentar þeim breiða hópi fólks sem vill hafa leiðsögutæki til að nota í bílinn í hálendisferðum á sumrin, en vill jafnframt geta notað tækið erlendis, hvort heldur er til að rata fótgangandi í helgarferðinni eða í bílnum. Tækið fæst bæði með Evrópukorti og Íslandskorti.

Náttúrufræðistofnun opnar Plöntuvefsjá

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur opnað nýja Plöntuvefsjá á Netinu. Með plöntuvefsjánni er Náttúrufræðistofnun að taka í sína þjónustu nýjustu tækni í miðlun upplýsinga um Netið þannig að notandinn getur nálgast traustar og áreiðanlegar upplýsingar um náttúru Íslands á myndrænan hátt. Plöntuvefsjáin er fyrsti áfangi í rafrænni miðlun náttúrufarsgagna stofnunarinnar og í henni má finna ítarlegar upplýsingar um háplöntur, mosa, fléttur og sveppi, útbreiðslu þeirra og einnig staðreyndasíður sem gefa ítarlegar upplýsingar um sérhverja plöntutegund með plöntulýsingu, ljósmyndum, röðun tegundar innan flokkunarfræðinnar, upplýsingum um búsvæði og útbreiðslu og fróðleik um skaðsemi og nytjar plöntunnar.

  • Velkomin á landakort.is

    Landakort.is er vefgátt fyrir landfræðilegar upplýsingar á Íslandi. Lesa meira...