Um upphaf loftmyndatöku (68)

Loftmyndir eru ómetanlegar heimildir, sem nýtast okkur á margvíslegan hátt. Notkun loftmynda og annarra fjarkönnunargagna hefur gjörbreytt því hvernig við sjáum og skynjum jörðina og umhverfið.

Skrá um „íslensk“ gervitunglagögn (67)

Fyrstu verkefnin sem miðuðust við að veita yfirsýn yfir þau gervitunglagögn sem aflað var, byggðust á kynningarefni um brautir gervitungla og reitakerfi hvers gervitungls, sem afmarkaði hvaða gögn var hægt að kaupa.

Fjarkönnunarnefndir RANNÍS (65)

Segja má að Íslendingar hafi tekið tiltölulega fljótt við sér varðandi stefnumótun á sviði fjarkönnunar, eftir að fyrstu skýjalausu Landsat gervitunglamyndir af Íslandi voru teknar árið 1972.

Ferðalag loftmyndar af Ljósafossvirkjun (64)

Sumarið 1937, nánar tiltekið 30. ágúst, tóku Danir loftmyndir af Ljósafossvirkun sem þá var í byggingu. Um er að ræða  skámyndir, tvær myndir með nægjanlegri skörun til að skoða þær í þrívídd. 

Um loftmyndir Dana 1949 og ónýtar filmur (63)

Sá loftmyndaflokkur sem fæstir þekkja úr sögu loftmyndatöku frá Íslandi geymir líklega myndir sem taldar eru teknar sumarið 1949 af Reykjavík og nágrenni. Vitað er að dönsk flugvél kom til Íslands

Landræn upplýsingaverkefni – Styrkir (62)

Hvað sem segja má um mikilvægi og forgangsröðun landfræðilegra upplýsingaverkefna, þá er forsenda allra slíkra verka áhugi einstaklinga, hvort sem þeir eru starfsmenn stofnana sem vinna slík verkefni innan fjárheimilda, hvort sem þeir

Landakort.is 10 ára (61)

Landakort.is er 10 ára um þessar mundir. Um er að ræða vefgátt fyrir landfræðilegar upplýsingar á Íslandi og tilheyrir hún flokki landrænna tenglagátta (e. catalog geoportals), en megintilgangur þeirra

Loftmyndir Bandaríkjamanna 1945-1946 (60)

Eftir að Bandaríkjamenn tóku við af Bretum í hernámi Íslands 1941 munu þeir hafa tekið nokkuð af loftmyndum, sem lítið er þó vitað um. Að minnsta kosti eru ekki til afrit hér á landi af mörgum

Loftmyndataka Þjóðverja yfir Íslandi 1942 (59)

Þegar orrustan um Atlantshafið harðnaði hóf njósnadeild þýska flughersins í Stafangri í Noregi skipulagða loftmyndatöku með öflugum myndavélabúnaði af hernaðarlega mikilvægum svæðum á Íslandi.