Með þeirri tækni sem komið hefur fram fyrir kortasjár á undanförnum tveimur áratugum hefur orðið bylting í möguleikum til að birta gagnaþekjur með afmörkun kortblaða í einstökum kortaflokkum. (meira…)
Author: Þorvaldur
-
Fjarkönnunargögn, kortaflokkar og kortasjár (47)
Framsetning og skráning lýsigagna fyrir stafræn landræn gagnasett á stofnunum er í meginatriðum tvenns konar. Annars vegar vegna notkunar innan stofnana eða á þeirra vegum og hins vegar vegna birtingar í samstarfsverkefnum (meira…)
-
Landrænn lýsigagnagrunnur hjá stofnunum (46)
Til þess að halda utan um landræna gagnaflokka og gagnasett er nauðsynlegt að upplýsingar um gögnin séu vel skráðar. Við skráninguna verða til gögn um gögn eða svonefnd lýsigögn, en við sérhverja uppfærslu gagnasetts (meira…)
-
Hugleiðingar um stöðu lýsigagnamála (45)
Opið aðgengi að landrænum gögnum byggir mjög á því að til verði vel skilgreind, skipulögð og samhæfð landræn gagnasett, sem birta má meðal annars í kortasjám og landgáttum af ýmsu tagi á Netinu. (meira…)
-
Samtök kortasafna, LIBER Map Group/MAGIC (44)
Kortasöfn sem stofnanir eiga sér langa sögu. Þekktasta kortasafn fornaldar var stofnað í Alexandríu í Egyptalandi nokkru fyrir Krists burð og áttu áhrif safnsins eftir að verða mikil um aldir. (meira…)
-
EuroMapFinder og EuroGeographics (43)
EuroGeographics samtökin voru formlega stofnuð árið 2002, en samtökin tóku við af CERCO sem samtök forstjóra evrópskra kortastofnana. Á þessum tíma hafði fjölgað mjög í CERCO samtökunum (meira…)
-
Gagnasamstarf í Evrópu á tímum CERCO (42)
CERCO (e. European Committee of Official Mapping Agencies) voru samtök forstjóra kortastofnana innan Evrópu. Upphaf samtakanna má rekja aftur til áranna 1979-1980, þegar forstjórar nokkurra kortastofnana í vestur Evrópu (meira…)
-
Landfræðilegt eða landrænt (41)
Þeir sem lærðu landafræði í barna- og gagnfræðaskóla fyrir áratugum síðan, þ.e. fyrir daga samfélagsfræðinnar, þekkja áhersluna á fróðleik um Ísland auk þess að læra um önnur lönd og þjóðir, það sem almennt hefur verið nefnt (meira…)
-
Að þýða „Spatial Data Infrastructure“ (40)
Hugmyndafræði grunngerðar á sviði landupplýsinga hefur verið mikið í umræðunni síðasta aldarfjórðunginn. Á ensku er talað um Spatial Data Infrastructure (SDI) sem skiptist í meginatriðum í hnattræna grunngerð (e. Global SDI), (meira…)
-
Tilraunaverkefni – Kortavefsjá 1:25 000 (39)
Litlar umræður hafa farið fram um mikilvægi íslenskrar kortavefsjár, þ.e. kortasjár til að sýna blaðskiptingar kortaflokka, kortaskrár og myndir af kortum sem gerð hafa verið og varðveitt eru í söfnum og á stofnunum. (meira…)